Velkomin að tjaldsvæðinu Systragili

Í skjóli trjáa við lindina hjalandi

Tjaldsvæðið Systragil er í landi Hróarsstaða, Fnjóskadal, Suður – Þingeyjarsýslu.
Tjaldsvæðið er vestan megin í Fnjóskadal, beint á móti stærsta birkiskógi landsins, Vaglaskógi.

Hvernig kemst ég á áfangastað
FRÁ AKUREYRI
  • Farið frá Akureyri í austurátt og akið í gegnum Vaðlaheiðargöng

  • Eftir göngin beygið strax í suður, Illugastaðaafleggjara (vegnúmer 833)

  • Akið eftir vegi 833 í um 2 km þar til komið er að brúnni yfir í Vaglaskóg, keyrt er inn á tjaldsvæðið til hægri áður en farið er yfir brúnna.

hreidur_70x100
FRÁ HÚSAVÍK / MÝVATNI
  • Akið framhjá Ljósavatni

  • Þegar komið er yfir brúna við Fnjóská er beygt til vinstri í suður, Illugastaðaafleggjara, eftir vegi númer 833

  • Akið eftir vegi 833 í um 2 km þar til komið er að brúnni yfir í Vaglaskóg, keyrt er inn á tjaldsvæðið til hægri áður en farið er yfir brúnna.

GPS HNIT

N 65° 7068 og 17° 8995

Afþreying

Í göngufjarlægð við tjaldsvæðið og í nánasta nágrenni

SUNDLAUGAR
  • Sundlaugin Illugastöðum: Sundlaug er á Illugastöðum í Fnjóskadal í 10 km fjarlægð. Einnig er minigolf á staðnum og er það opið á sama tíma og sundlaugin. Þar eru heitir pottar fyrir börn og fullorðna.
  • Sundlaugin Stórutjörnum: Sundlaug og heitur pottur er á Stórutjörnum í Ljósavatnsskarði í um 13 km fjarlægð.
VEIÐI
  • Dalsá: Dalsá er dragá og á upptök sín á Flateyjardalsheiði og fellur norður Flateyjardal í Skjálfanda. Þó nokkur silungsveiði er í ánni. Veiðileyfi í Dalsá eru seld í Merki, Fnjóskadal.
  • Níphólstjörn: Er fyrir ofan bæinn Stórutjarnir í Ljósavatnsskarði. Þangað er u.þ.b. 20 mín gangur frá bænum. Ágætisveiði er í vatninu, en þar veiðist nær eingöngu urriði. Veiðileyfi í Níphólstjörn eru seld á Stórutjörnum.
  • Ljósavatn: Stórt stöðuvatn í mynni Ljósavatnsskarðs austan megin. Ágæt veiði er í vatninu, mest af bleikju, en fiskurinn frekar smár. Veiðileyfi eru seld á bæjunum í kringum vatnið sem og á Hótel Eddu, Stórutjarnaskóla, á sumrin.
GOLF
  • Lundsvöllur í Fnjóskadal er í um 3 km fjarlægð frá tjaldsvæðinu og er í landi Lundar, mitt á milli Vaglaskógar og Lundsskógar. Lundsvöllur er 9 holu golfvöllur, par 34. Við völlinn er klúbbhús með kaffi og veitingasölu.
GÖNGULEIÐIR
  • Tjaldstæðið  Systragil – Vaglaskógur – Gamla brúin: Tilvalið er að ganga niður á þjóðveg (nr. 833) og beygja suður dal til hægri. Ganga yfir brúna, beygja þar norður Vaglaskóg, (veg nr. 836), þar til komið er að gömlu bogabrúnni. Gengið er yfir bogabrúna og upp á melinn vestanmegin í dalnum, upp að þjóðvegi (nr. 833) og þá beygt suður dal, framhjá Hróarsstöðum, þar til komið er í Systragil. Gönguleiðin er um einnar klst. gangur.
  • Vaglaskógur: Gengið er niður á þjóðveg (nr. 833) og beygt suður dal, þ.e. til hægri. Þá er gengið yfir brúna. Þar á upplýsingaskilti merktu i á kortinu hér fyrir neðan eru merktar gönguleiðir um skóginn, mislangar. Í skóginum er skemmtilegt trjásafn með fjölda tegunda og margir áhugaverðir skoðunarstaðir.
  • Þingmannaleið –Eyrarland, Merkt gönguleið, gengið upp túnið upp með Systragili sem er gilið sunnan við bæinn. Þá er gengið eftir Systrahrygg, milli Systravarðanna, inn yfir heiði og niður að bænum Eyrarlandi, Eyjafjarðarmegin. Þar sem leiðin liggur yfir Systragilsdragið er mikið mannvirki úr hellum og grjóti í veginum, hleðsla, meir en meðalmannhæð, vel og haganlega hlaðið. Þaðan er haldið áfram eftir stikum niður í Eyrarland. Eyjafjarðarmegin eða snúið við til baka í Systragil. Stikuð leið. 10 km leið,um 4 klst. gangur.
  • Þingmannaleið – menntaskólavarða Gengið sömu leið og nefnd er á undan en stuttu eftir hleðsluna er beygt til hægri stikaða leið. Þá er fyrst komið að menntaskólavörðunni en þar er útsýni mjög gott yfir Eyjafjörð og Akureyri. Þaðan er haldið áfram norður, þar til komið er að Geldingsárskarðsleið er liggur niður sunnan við Skóga. Þá er beygt aftur til hægri og gengið niður í mót, þar til komið er að þjóðvegi nr.833. Gengið suður dal í Systragil.
  • Hálshnjúkur: 627 m hár. Farið er upp úr Vaglaskógi, hjá Efri-Vöglum. Stikuð leið. Þaðan er stórkostlegt útsýni. Auðveld ganga, um 2 klst. fram og til baka.
Náttúruperlur og áfangastaðir

Í innan við klukkustundar keyrslu frá tjaldsvæðinu

Í næsta nágrenni við tjaldsvæðið (3 km) er 9 holu golfvöllur, Lundsvöllur, sundlaugar á Illugastöðum (10 km) og í Stórutjarnaskóla (13 km). Tjaldsvæðið Systragil er miðsvæðis á Norðurlandi. Stutt er í Goðafoss ( 25 km), Laufás (20 km), Akureyri (16 km), Húsavík (65 km) og Mývatnssveit þar sem Námaskarð, Dimmuborgir og Jarðböðin eru (60 – 75 km). Hægt er að kynna sér þessa áfangastaði í gegnum http://www.nordurland.is og http://www.diamondcircle.is. Þá eru margar gönguleiðir við tjaldsvæðið og í nánasta nágrenni þess sem leiða í gegnum birkiskóginn og upp í Vaðlaheiði.