Tjaldsvæðið Systragil er skjólgott tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, vagna og húsbíla.
Á tjaldsvæðinu er rafmagn, eldunaraðstaða, leiktæki, upphituð salerni, þvottavél, þurrkari, heitt vatn, sturta og klóaklosun.
Velkomin að Tjaldstæðinu Systragili
Í skjóli trjáa við lindina hjalandi
Tjaldsvæðið Systragil er við veg 833, 2 km. frá þjóðvegi 1.
Tjaldsvæðið Systragil er staðsett á lítilli hæð í vestanverðum dalnum gegnt stærsta birkiskóg landsins, Vaglaskóg. Afþreying við allra hæfi, merktar gönguleiðir, golfvöllur, stangveiði, húsdýragarður og sundlaug.
Tjaldsvæðið Systragil er miðsvæðis á Norðurlandi. Stutt er í Goðafoss ( 25 km), Laufás (20 km), Akureyri (16 km), Húsavík (65 km) og Mývatnssveit þar sem Námaskarð, Dimmuborgir og Jarðböðin eru (60 – 75 km).
Opnunartími er frá 1. júní til 30. september.
Verð sumar 2025
Kr 1900/mann nóttin + gistináttaskattur
Kr 1700/mann, 67 ára og eldri + gistináttaskattur
Frítt fyrir börn 15 ára og yngri
Rafmagn 1100 kr per sólarhring
Þvottavél og þurrkari 1000 krónur
Nánari upplýsingar :
Tjaldsvæðið Systragil
Hróarsstöðum – 607 Akureyri
Netfang: systragil@simnet.is
Sími 8602213
Tjaldsvæðið Systragil er í landi bóndabýlisins Hróarsstaðir í Fnjóskadal, Suður -Þingeyjarsýslu. Í næsta nágrenni (3 km) er 9 holu golfvöllur er ber heitið Lundsvöllur og sundlaugar á Illugastöðum (10 km) og í Stórutjarnaskóla (13 km).
Lítil búð er við orlofsbyggðina á Illugastöðum. Merktar gönguleiðir eru bæði í Vaglaskógi og upp með Systragili, Þingmannaleið. Mikill gróður er á svæðinu og lækurinn Systralækur.
Í hlíðunum fyrir ofan tjaldstæðið eru melar og skóglendi og þar má finna mikið af berjum og sveppum.
